Veislusalir ehf hafa tekið við hinum geysi vinsæla Glersal í Kópavoginum. Salurinn er bæði bjartur og fallegur en hann tekur allt að 160 manns í sæti einnig eru þar stórar svalir sem gefa mikla möguleika.
Veislusalurinn Skógarhlíð 20 en það var karlakór Reykjavíkur sem byggði húsið á sínum tíma og gekk þá undir nafninu Ýmissalurinn. Salurinn er hinn glæslegasti í alla staði og rúmar 90-200 manns sitjandi og allt að 350 standandi.
Starfsfólk okkar hefur áratuga reynslu í umsjón með veislum og skiptir þá ekki máli hvort um sé að ræða erfidrykkjur, árshátíðir, brúðkaup eða afmæli.